ÞJÓNUSTUSAMNINGAR FYRIR LYFTUR
Fáðu samanburðartilboð í þjónustu lyftunnar.
Við bjóðum húsfélögum, fasteignastjórum og rekstraraðilum ókeypis yfirferð á núverandi þjónustusamningi og kostnaði við lyftuþjónustu.
Óska eftir ókeypis yfirferðEngin skuldbinding. Tæknilegt ástandsmat og skoðun á lyftu eru sérverkefni og ekki hluti af þessari yfirferð.
- 01
Samningur og kostnaður
Við skoðum hvað er innifalið, þjónustutíðni og kostnað vegna viðhalds og útkalla.
- 02
Skýr samanburður
Við drögum saman helstu atriði og bendum á hvað þarf að skýra eða kanna nánar.
- 03
Tilboð eftir þörfum
Ef óskað er gerum við tilboð í þjónustusamning með skýru umfangi og verðforsendum.
FYRIR HÚSFÉLÖG OG FASTEIGNAUMSJÓN
Hvað borgar sig að bera saman?
Ársgjaldið segir ekki alla söguna. Við skoðum einnig fyrirhugaðar þjónustuheimsóknir, skýrslugjöf, útkallagjöld, varahluti og uppsagnarfrest.
Þú þarft ekki að hafa öll gögnin við höndina til að byrja. Sendu okkur helstu upplýsingar og við höfum samband um næstu skref.
ÓKEYPIS SAMNINGS- OG KOSTNAÐARYFIRFERÐ
Segðu okkur frá húsinu og lyftunni.
Sendu stutta beiðni. Við höfum samband og förum yfir hvaða gögn þarf. Ekki senda samninga eða reikninga með persónuupplýsingum í þessu formi.
Þjónustutími
Mánudaga til fimmtudaga 08:00–17:00
Föstudaga 08:00–16:00
Lokað um helgar
Þjónustan er veitt hjá viðskiptavinum. Á Óseyrarbraut 7 eru verkstæði og lager.